Skilmálar
Skilmálar
Greiðslumöguleikar
Mögulegt er að greiða fyrir vörukaup með kortum (Mastercard, Visa og Maestro). Greiðslan fer fram í gegnum örugga afgreiðslu Teya hf.. Einnig er í boði að greiða við afhendingu á vörunni.
Pöntun á vöru
Þegar kaupandi hefur staðfest pöntun á vefsvæði gulliarnar.is telst hún bindandi milli aðila. Kaupandi fær pöntunarstaðfestingu senda á netfang sem gefið var upp við pöntun. Kaupandi er hvattur til þess að kanna sérstaklega hvort að pöntunarstaðfesting hafi borist frá seljanda og hvort hún sé í samræmi við pöntun hans.
Afhendingar
Allar pantanir eru sóttar í bakaríið að Flatahrauni 31 á umsömdum tíma og eftir því hvaða tíma viðskiptavinur valdi í vefverslun okkar. Ekki er í boði að fá pantanir sendar til sín.
Verð
Öll verð í netverslun eru með 24% virðisaukaskatti (VSK).
Öll verð á síðunni eru birt með fyrirvara um prentvillur.
Skilafrestur - skiptiréttur
Ekki er hægt að skila vörum sem keyptar hafa verið í gegnum vefverslun gulliarnar.is eða í verslun Gulla Arnar ehf.
Ábyrgðarskilmálar eru samkvæmt íslenskum neytendalögum.
Lög og varnarþing
Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavikur
Öryggisskilmálar
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin.
Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.