Um okkur og bakaríið
Gulli Arnar, stofnandi
Gulli byrjaði að læra bakstur árið 2013 í Kökulist. Á námstímanum fékk hann ýmsar viðurkenningar fyrir góðan árangur í náminu, meðal annars sigraði hann nemakeppni Kornax tvisvar sinnum, kláraði hin ýmsu námskeið á meðan á náminu stóð og útskrifaðist úr MK með viðurkenningu fyrir framúrskarandi námsárangur. Að lokum var hann heiðraður af Iðnaðarmannafélagi Reykjavíkur fyrir góðan árangur í sveinsprófi.
Eftir sveinspróf fór hann til Kaupmannahafnar að læra Konditor og útskrifaðist frá ZBC skólanum í Ringsted með Bronz medalíu og Saint Honoré viðurkenningu.
Bakaríið og sagan
Bakaríið, Gulli Arnar Bakarí, opnaði 23. apríl 2020 og hefur frá þeim tíma vaxið og dafnað með hverju árinu. Bakaríið hefur alltaf verið staðsett við Flatahraun 31 í Hafnarfirði og byrjaði fyrst í litlu 80 m2 rými í húsinu. Í dag erum við með um 400 m2 rými og hátt í 30 starfsmenn.
Bakaríið hefur ávalt haft sterk og stöðug gildi að leiðarljósi, framleiða gæða vörur úr góðu hráefni og veita framúrskarandi þjónustu. Þau gildi höldum við ávalt fast í.
Við erum komin með breiða og góða vörulínu í sætabrauði, súrdeigsbrauðum, tertum, samlokum ofl.
Endilega lítið við eða hafið samband ef það er eitthvað sem við getum gert fyrir ykkur!